Í dag byrjaði ég að blogga. Ég við þakka Bjögga, virðulegum starfsmanni hjá Hagstofunni, fyrir að kynna mér fyrir þessum hlut. Dagurinn í dag byrjaði eins og dagurinn í gær nema hvað að það var í gær. Börnin voru hress. Dísa var nú frekar þreytt greyjið. Ég kom í vinnuna á skikkanlegum tíma og settist við hakkavélina og hamraði svör við póstum út í heim.
Dagurinn leið nokkuð samkvæmt áætlun, nema hvað að einn samstarfsmaður hætti snögglega störfum með tilheyrandi gleði.
Nú er á döfinni að kaupa fisk á fiskmarkaðsverði. Ég fer í greiðslumat á eftir og fæ þá að vita hvort ég geti keypt mitt kíló af ýsu.
Ég blogga meira síðar.

Ummæli

Vinsælar færslur